08janúar

smá annáll frá árinu 2008

ég ætla ekki að gera þetta eins ítarlega og hún Sigríður vinkona og frænka, en hér kemur þetta :)

janúar: ég tók sveinsprófin mín (og náði að sjálfsögðu öllum með góðar einkunnir), ég varð 23ára
febrúar:  varð veðurtept í Borgarnesi og þurfti að borga 10.000kr fyrir gistingu á hótel Hamri, og fór á fyllerí með leiðinlegum Akureyringi (ekki Sollu :))  stóra sameiginlega þorrablótið var haldið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki, mikið gaman mikið fjör:)
mars: Skagfirðingakvöld á Players...með skemmtilegri djömmum sem ég hef farið á.... held ég huh vodki huh bjór:)
apríl: það hlýtur eitthvað að hafa gerst í apríl, ég bara man ekki eftir því :)
maí: jæja alzheimer light eða hvað ...
júní: sumarið komið  og gleði yfir öllum, sólböð og bjórdrykkja einkenndu þennan mánuð
júlí: fór á fjölskyldumót sem haldið var á Steinstöðum allir afkomendur Gauju ömmu saman komnir, rosa stuð og mikill söngur. Fór til New York og Orlando, Florida og var þar í rúmar 2vikur, fáránlega gaman og ég kom heim með örlítinn lit á hörund, sem flagnaði reyndar af c.a 2dögum eftir að ég kom heim :)
ágúst: var fyrir norðan í góðu yfirlæti í 3vikur, var að vinna á stofunni hennar Möggu P, fór í bíóferð til Akureyrar, fór um versló á Sigló, fór á fiskidaginn mikla á Dalvík, fullt fullt af böllum og mikið djammað. (samt eyddi ég ekki nema 20.000kr á þessum 3vikum með öllu sem ég gerði, geri aðrir betur.
september: fór í Staðarrétt með Axel frænda og við vorum að draga rollur fyrir Glaumbæ, svo lét ég mig nú ekki vanta á Laufskálaréttir og Laufskálaréttarballið, byrjaði í meistaraskólanum
október: týpískur október, aldrei verið mikið varið í þennan mánuð
nóvember: pabbi gamli varð 51 árs, passaði Axel Snæ og Brynju Líf í 5daga, lærði eins og motherfocker undir próf
desember: crazy að gera í vinnunni, Hinni flutti heim frá Þýskalandi, ég og Stefý ríghéldum í stýrið og sungum hástöfum á leiðinni norður á Þorláksmessu, fór á bekkjarhitting 26. des, fór á frændsystkyna og frændmenningarmót Halldórsstaðarfólksins 27.des....svaf , svaf,svaf, vorum rafmagnslaus á gamlársdag, mamma ofurkona eldaði humar, hreindýr, brúnaðar kartöflur, epplamauk, sósu og eitthvað annað ALLT á 1 prímus (geri aðrir betur) svo var borðaður þessi dýrindismatur við kertaljós.

ágætis ár alveg hreint
kv. Agnes með gloppótta minnið

08. janúar 2009 klukkan 16:33
Agnes Skúladóttir
3 athugasemdir
23desember

Gleđileg jól kćru vinir

Ég vil óska öllum vinum og ættingjum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


kv.Agnes
23. desember 2008 klukkan 16:03
Agnes Skúladóttir
Engin athugasemd
11nóvember

Úrvalsstökur

Það er erfitt að lýsa ástandinu og hugsunum fólks í dag með orðum , því tel ég best að lýsa því í stökum :)

Stjórnmálamenn eru búnir að vera að lenda í harðri gagnrýni undanfarið og eru flokkarnir að liðast í sundur.
Karl Sigtryggsson orti 
Almenningur ekkert veit,
allt er á sandi kvikum,
af því fögur fyrirheit
fara á undan svikum.

Þegar almenningur þarf mest á hjálp að halda, er erfitt að finna hana.
Friðrik Jónsson frá Helgastöðum orti
Heimsins brestur hjálparlið,
hugur skerst af ergi.
Þegar mest ég þurfti við,
þá voru flestir hvergi.

"Útrásarvíkingarnir" svokölluðu, komu mörgum á óvart allir vildu vera í sömu sporum og geta verið í sinni einkaþotu í Armani jakkafötum. En allt breyttist í október.
Jón frá Langey orti
Veraldar er venjan slík
að virða hinum betur,
þann sem undir fínni flík
falið úlfinn getur.

En svona er bara lífið, það er ekkert hægt að gera nema sigla með.
Páll J. Árdal orti
Kærðu þig ekki um hættur hót,
horfi fylgdu réttu.
Stýrðu þungum straumi mót,
stefndu að marki settu.

Horfa á björtu hliðarnar, sjá það jákvæða í kreppunni
Jón Árnason Víðimýri orti
Engan kvíða ég á mér finn
eða stríð í sinni,
þó hafi tíðum heimurinn
horn í síðu minni.



með kveðju Agnes einstaka :)

11. nóvember 2008 klukkan 15:51
Agnes Skúladóttir
1 athugasemd
24október

í kjólinn fyrir jólin

Fyrst að það er ekki mikið um peninga á milli handa hjá landanum, þá eru góð ráð dýr (haha double meaning)
Ég var búin að hugsa að fá mér rosa fínan kjól fyrir jólin, en þar sem að ég hef ekki beinlínis efni á því þá þarf ég að vera bara í einhverjum gömlum sem ég á.
Vandamálið er samt að það er búið að vera svo mikið góðæri hjá mér síðustu ár að ég á bágt með að passa í gömlu larfana, því hef ég tekið þá ákvörðun að reyna að komast í gamla kjólinn fyrir jólin.
Ég fór í ræktina í gær og ég ætla í fitness box í kvöld (shit) vonandi dugar þetta svo að ég þurfi ekki að vera í teygjubuxum og stuttermabol við matarborðið. wish me good luck

með kveðju fitubollan Agnes
24. október 2008 klukkan 15:38
Agnes Skúladóttir
4 athugasemdir
19október

samdráttur á öllum sviđum..líka djamminu

Jæja gott fólk, þetta gengur ekki lengur.
Á síðustu misserum hef ég fundið mikið fyrir því hvað margt er búið að breytast í kringum mig, og tel ég það vera að mörgu leyti aldurinn sem er farinn að segja til sín. ekki það að ég sé gömul, heldur er ég greinilega komin á þennan "yndislega" barneigna og giftingaraldur.
Það líður varla sá dagur að ég frétti ekki af vinkonum mínum sem annaðhvort voru að eignast kærsta, trúlofa sig eða eru óléttar.
Ég á fjórar mjög góðar vinkonur sem allar eru með barn undir belti, sem að þýðir fyrir mig að djammfélugum rýrnar fremur ört...og það er vandamál.

þess vegna auglýsi ég her með eftir nýjum djammfélugum, sem ekki eru á leiðinni í samband eða stefna á barneignir næstu fimm árin :)
Ef að það gengur ekki upp þá verð ég bara að feta í fótspor vinkvenna minna og auglýsi þá eftir kærasta :)

kveðja Agnes ..sem er breytngum háð
19. október 2008 klukkan 17:37
Agnes Skúladóttir
6 athugasemdir
10október

Herra Ólafur Ragnar Grímsson

Ég hef mikið verið að velta þvi fyrir mér í ljósi aðstæðna hér á landi, hvernig ráðamenn taki á málunum.
Alla daga er blaðamannafundur með forsætisráðherra Geir H. Haarde og viðskiptaráðherra Björgvini G. Sigurðssyni um mál málanna í dag.
Við megum ekki fara að sofa því á fer banki á hausinn og allt virðist fara á hvolf á nóttunni.
Svo var ég að velta vöngum með vinkonu minni hvar í ands... sé vor forseti á svona stundum. Við erum búnar að hneykslast á þessu í gríð og erg, þó svo að þetta sé svokallað punt embætti þá hefur okkur þótt samt alveg lágmark að sýna smá lit.
Eftir langar samræður um þetta þá var gripið fram í fyrir okkur og sagt. "stelpur vitið þið ekki neitt herra ólafur fór í hjartaþræðingu á mánudaginn"   Ó  uh úps :/

Herra ólafur ég biðst hér með afsökunar á öllum þeim orðum sem komu í belg í þessum samræðum, sorry Óli :)

kv. Agnes þjóðrækna
10. október 2008 klukkan 20:40
Agnes Skúladóttir
Almennt
2 athugasemdir
01október

ef ég bara hefđi tíma

Það er svo margt sem að mig langar að gera, svona  bara fyrir sjálfa mig.

Mig langar á söngnámskeið
Mig langar að læra á harmonikku
Mig langar að fara í áhugamanna leikfélag
Mig langar að læra á gítar
Mig langar í kór



 það er ekki nóg með það að maður hafi ekki tíma heldur kostar þetta víst peninga en maður á aldrei að láta peningana standa fyrir draumum sínum....það er svo annað mál með tímann.
Það eru örugglega margir sammála mér í því að það vantar eiginlega auka klukkustund eða tvær í sólarhringinn. Allavega óska ég þess :)

kv. Agnes draumastúlka
01. október 2008 klukkan 14:54
Agnes Skúladóttir
1 athugasemd
23september

26.-28.september hvar verđur ţú?

Hérna er hún  Magga mín,
og yfir meynni er léttir.
Hún brúkar mikið brennivín,
því brátt koma laufskalaréttir.

Já krakkar mínir nú líður að Laufskálaréttum helgina 26.-28.sept, ég ætla pottþétt að mæta en hvað með ykkur?

Fyrir þá sem vita ekki hvað Laufskálaréttir eru þá eru þetta stærstu stóðréttir landsins , þangað flykkist fólk til að sjá öll þessi hross og allt þetta fólk samankomið. Þetta eru nú ekki bara réttir, heldur er að sjálfsögðu líka réttarball  að sveitasið.
Ballið verður haldið í reiðhöllinni að Svaðastöðum og munu hljómsveititn Von ásamt Björgvini Halldórssyni og Stefáni Hilmarssyni haldda uppi stuði langt fram á nótt, þetta er garantíað stuð :)
Og þeir sem fíla þá ekki er að sjálfsögðu hægt að fara á ball í Höfðaborg á Hofsósi með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna eða á Hótel varmahlíð að hlíða á ljúfa tóna frá Helgu Möller og Hilmi Sverris. Ekki má gleyma reiðsýningunni í reiðhöllinni sem verður á föstudagskvöldið þar munu Laddi og hans sonur skemmta okkur á milli þess sem að falleg hross stíga á stokk. Hvað svo sem þú vilt gera þá mæli ég með Skagafirði þessa helgi því það er margt í boði og alveg bókað að það verður gaman
23. september 2008 klukkan 11:28
Agnes Skúladóttir
1 athugasemd
12september

bara húsmóđir

Ég fékk þessa frábæru vísu í hendurnar og ákvað að deila henni með ykkur :)



"BARA HEIMAVINNANDI HÚSMÓÐIR"
Hann var í fríi og lá í landi
að leysa af heima var enginn vandi.
Konan var að því komin að fæða
og hvergi um húshjálp að ræða.

En hvað munar karlmann um kerlingarstörfin
þó kannski sé stundum fyrir þau þörfin?
Konan var heima og hafði engu að sinna
nema hugsa um krakka, það er ekki vinna.

Hún sagði: „Elskan þú þarft ekkert að gera,
aðeins hjá börnunum heima að vera,
ég er búin að öllu, þvo og þjóna,
þú þarft ekki að bæta, sauma eða prjóna.“

„Matur er útbúinn allur í kistunni,
það ætti að duga svona í fyrstunni,
aðeins að líta eftir öngunum átta,
ylja upp matinn og láta þau hátta.“

Nú skyldi hann hafa það náðugt og lesa
og ná sér í ærlegan skemmtipésa.
Hann var ekki sestur og var nokkuð hissa
er vældi í krakka: „Ég þarf að pissa.“

Vart þeirri athöfn var að ljúka
er veinaði annar: „Ég þarf að kúka.“
Þarna var enginn einasti friður
ef ætlaði hann að tylla sér niður.

Dagurinn leið svo í sífelldum önnum
sem ei voru bjóðandi mönnum.
Þvílíkt og annað eins aldrei í lífinu
útstaðið hafði hann í veraldarkífinu.

Ölduna stíga í ósjó og brælum
var ekkert hjá þessu, það kallaði hann sælu.
En þeytast um kófsveittur skammtandi
og skeinandi, skiljandi áflogaseggina veinandi!

Ef eitt þurfti að éta varð annað að skíta
og engin friður í bók að líta.
En hún sagði: „Elskan, þú þarft ekkert að gera
aðeins hjá börnunum heima að vera.“

Nú voru krakkarnir komnir í rúmið,
kyrrlátt og sefandi vornætur húmið
seiddi í draumheimana angana átta
en ekki var pabbi farinn að hátta.

Hann stóð þarna úfinn, úrvinda og sveittur,
yfir sig stressaður, svangur og þreyttur,
og horfði yfir stofuna: „Hamingjan sanna,
hér á að teljast bústaður manna.“

Það skyldi hann aldrei á ævinni gera
í afleysingu slíkri sem þessari vera,
þó væri í boði og á því væri raunin
að þau væru tvöfölduð, skipstjóralaunin.

En þetta á konan kauplaust að vinna
og kallað að hún hafi engu að sinna.
Af daglangri reynslu hans virtist það vera
að það væri stundum eitthvað að gera.

Áfram með störfin ótt líður tíminn,
Æ, aldrei friður, nú hringir síminn.
„Halló“, var sagt, „það er sætt ég túlka,
þér er sonur fæddur og yndisleg stúlka.“

Hann settist á stól og fann til svima og klígju,
„Hvað sagði hún; að krakkarnir væru orðnir tíu?!“
„Ég þarf að taka til öruggra varna,
ég ákveð á stundinni að hætta að barna!“
kveðja Agnes (ég er sko ekki húsmóðir fyrir fimm aura) :)
12. september 2008 klukkan 17:27
Agnes Skúladóttir
4 athugasemdir
09september


Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Kaupfélag Skagfirðinga, Players, Zsa Zsa og Feima

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

everything is illuminated, pulp fiction ,boondocksaints,sódóma


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Raftahlíð 75 Skr, Hólatún 7 Skr, Kársnesbraut 53 Kóp, Austurgerði 7 Kóp

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
House, CSI, Friends og Greys anatomy

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Danmörk, Spánn, Bandaríkin og að sjálfsögðu Ísland

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

mbl.is, visir.is, skagafjordur.com og hotmail.com

Fernt matarkyns sem ég held uppá:
lambakóteletturnar hennar ömmu, nýupptekið smælk með smjeri :), folaldavöðvi með piparsósu og brúnuðum kartöflum, röggi special á pollanum

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

les ekki það sama oft. Flugdrekahlauparinn, Þúsund bjartar sólir, Hýbýli vindanna, Hjarta Voltaires
 

Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
Skagafjörður, Skagafjörður, Skagafjörður, Skagafjörður :)



Fjórir bloggarar sem ég klukka:

ég ætla bara að sleppa því að klukka einhvern :)

 

kveðja Agnes sem er með c.a 30 marblettir eftir réttir :)

09. september 2008 klukkan 19:49
Agnes Skúladóttir
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

um mig

  • Nafn: Agnes Skúladóttir
  • Stađur: Sauđárkrókur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: hársnyrtir :)
  • Hjúskaparstađa: á lausu
  • Um mig: ég er sveitatútta sem er ađ ćfa sig ađ ganga í hćlum:)
  • Annađ: félagi í físuvinafélaginu

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur